Tarik Ibrahimagić framlengir við Víking til 2029

Knattspyrnudeild Víkings hefur gengið frá nýjum samningi við Tarik Ibrahimagić og gildir hann út tímabilið 2029.

Tarik kom til félagsins frá Vestra sumarið 2024 og hefur síðan verið mikilvægur hluti af liðinu, bæði heima og í Evrópu. Hann hefur leikið 78 leiki fyrir félagið og varð strax mikivægur hluti af hópnum sem varð Íslandsmeistari 2025, 2026 og tók þátt í Sambandsdeildarævintýrinu 2024/25. Tarik er fjölhæfur leikmaður sem hefur leyst hlutverk bæði á miðjunni og í varnarlínunni. Vinnusemi hans, yfirvegun á boltanum og fagmennska innan sem utan vallar hafa gert hann að einum af lykilmönnum liðsins.

Tarik er að jafna sig eftir meiðsli um þessar mundir en verður klár í slaginn áður en nýtt tímabil hefst.

Kári Árnason, yfirmaður knattspyrnumála:
„Tarik hefur sýnt það frá fyrsta degi hvað í honum býr. Hann er leikmaður sem þjálfarar treysta, sama hvar á vellinum hann er settur, og hann hefur vaxið mikið hjá okkur. Það er mikilvægt fyrir félagið að halda leikmönnum af hans gæðum og karakter, og við hlökkum til að sjá hann aftur á vellinum.“

Áfram Víkingur! 🖤❤️

Aðrar greinar

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Daníel Hafsteinsson framlengir til 2030

Uncategorized

Sigurður Páll valinn í Elítuhóp HSÍ

Knattspyrna, Forsíðufrétt, Félagið

Ferðamenn upplifa Hamingjuna

Forsíðufrétt

Virkir Víkingar – Heilsuefling 60+ í Virkinu í vetur!

Forsíðufrétt

Októberfest Víkings haldið 19. september

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Gunnar Vatnhamar til Vejle