Æfingatöflur og skráningar hafnar | Knattspyrnufélagið Víkingur
26. ágúst 2022 | Knattspyrna, Karate, Borðtennis, HandboltiÆfingatafla vetrarins fyrir yngriflokka í handbolta, fótbolta, karate og borðtennis hafa verið birtar á vikingur.is undir æfingatöflur. Búið er að opna fyrir skráningar sem fram fara í gegnum sportabler : https://www.sportabler.com/shop/vikingur
Íþróttasvæðið í Safamýri er nýtt íþróttasvæði Víkings en þar munum við einnig halda úti starfsemi. Við biðjum því foreldra og forráðamenn að skrá iðkanda í réttan flokk á réttum stað.
Hægt er að sjá æfingadagsrká í Sportabler þegar iðkandi hefur verið skráður. Iðkendur sem hafa verið áður hjá Víking færast sjálfkrafa upp um flokk. Ath: Foreldrar þurfa að fylgjast vel með í Sportabler varðandi flokkaskipti í 6.fl kk og 6.fl kvk í Fótbolta. Þar sem flokkaskipti hafa ekki átt sér stað.
Minnum við samt foreldra/forráðamenn á skráningu og greiðslu fyrir haustönn.
Hérna er hægt að sjá Rútuplanið og tímasetningar á Víkingsrútunni ásamt upplýsingum um Víkingsrútuna
Víkingsrútan – Rútuplan og tímasetningar
Upplýsingar um Víkingsrútuna
_______________________________