Það er okkur sönn ánægja tilkynna að Gísli Steinar Jónsson hefur gert tveggja ára samning við Handknattleiksdeild Víkings um þjálfun meistaraflokks kvenna. Gísli Steinar gerir samning til ársins 2028. Gísli er fæddur og uppalinn í Vestmannaeyjum og býr yfir mikilli og góðri reynslu af handboltaþjálfun. Gísli Steinar hefur undanfarin ár þjálfað 3. og 4. flokk kvenna hjá ÍBV. Þá hefur hann einnig þjálfað yngri flokka kvenna hjá Fjölni ásamt því að sinna þjálfun meistaraflokks kvenna hjá félaginu. Fyrir þann tíma bjó hann í Noregi og þjálfaði yngri flokka hjá Fet IL í sex ár.
Það eru spennandi tímar framundan í félaginu og er ráðning Gísla mikilvægur hluti í miklum og örum vexti handknattleiksdeildar Víkings.
Áfram Víkingur!❤️🖤