
Kæru Víkingar. Sveinn Aron Guðjohnsen (28) hefur skrifað undir hálfs árs samning við Víking eða til 31.12.2026 og ætlar að hjálpa okkur í lokabaráttunni um íslandsmeistaratitilinn og áframhaldandi sókn okkar í Evrópu.
Sveinn hefur spilað 20 A landsleiki og 34 landsleiki fyrir yngri landslið Íslands. Hann hefur spilað erlendis meira eða minna alla tíð og síðast hjá Cavese á Ítalíu.
Kári Árnason yfirmaður knattspyrnumála hafði þetta að segja :
Svenni spilaði sinn síðasta leik í lok apríl þannig að leikformið er kannski ekki uppá 10 en hann hefur æft vel og hefur núna 1-2 vikur til þess að komast í alvöru stand. hann er hungraður og ætlar sér aftur erlendis að spila og gæti þetta verið frábær gluggi fyrir hann að sýna sig og jafnframt hjálpað okkur á öllum vígstöðum.
Þess má geta að afi Sveins, Arnór Guðjohnsen lék fyrir Víking fyrir tæpum 50 árum, áður en hann fór út í atvinnumennskuna, og má því með sanni segja að Sveinn Aron sé kominn heim.
Vertu hjartanlega velkominn í Hamingjuna Sveinn Aron Guðjohnsen. Velkominn heim. ❤️🖤