
Víkingur Reykjavík og FH hafa komist að samkomulagi um að Sigurborg Katla Sveinbjörnsdóttir leiki með FH á láni út yfirstandandi tímabil.
Sigurborg Katla er uppalin í Hamingjunni og hefur verið hluti af öflugum leikmannahópi Víkings undanfarin ár. Katla hefur spilað 101 leik fyrir Víking og 27 leiki fyrir yngri landslið Íslands.
Víkingur óskar Sigurborgu Kötlu góðs gengis með FH á meðan lánsdvölinni stendur og hlakkar til að fylgjast með framvindu hennar það sem eftir lifir tímabils. 🖤❤️