Frábær árangur hjá yngri kvennaflokkum Víkings á Partille Cup

Yngri kvennaflokkar Víkings stóðu sig með miklum sóma á Partille Cup í Gautaborg sem lauk um helgina. Sérstaklega vakti lið 1 í 5. flokki kvenna athygli en þær unnu sér sæti í úrslitaleik B-keppni 13 ára stúlkna og enduðu í 2. sæti eftir spennandi úrslitaleik gegn sænska liðinu Växjö HF.

Samkvæmt upplýsingum frá Partille Cup tóku alls 45 íslensk lið þátt í mótinu í ár. Lið Víkings í 5. flokki var eina íslenska liðið sem komst í úrslitaleik á mótinu, sem er afar glæsilegur árangur. Stelpurnar léku því alls tíu leiki á aðeins fimm dögum og sýndu mikla seiglu, samheldni og baráttuvilja alla leið í úrslitaleikinn.

Einnig átti 4. flokkur kvenna frábært mót þar sem liðið sýndi sterka frammistöðu og keppti af miklum krafti. Ferðin var dýrmæt reynsla fyrir leikmenn beggja flokka sem fengu tækifæri til að etja kappi við lið frá fjölmörgum löndum og styrkja bæði liðsheild og leikreynslu.

Þjálfarar 4. flokks eru Eva Hrund og Dagur, en Marinó og Sigurður þjálfa 5. flokk. Þau eiga öll hrós skilið fyrir metnaðarfullt starf og þann árangur sem liðin náðu á einu stærsta og fjölmennasta handknattleiksmóti heims.

Víkingur óskar leikmönnum, þjálfurum og öllum sem komu að ferðinni innilega til hamingju með glæsilegan árangur!❤️🖤

Aðrar greinar

Knattspyrna, Forsíðufrétt, Handbolti

Víkingur og BUR bjóða upp á ný sumarnámskeið í ágúst

Forsíðufrétt, Handbolti

Gísli Seinar ráðinn sem þjálfari hjá Víkingi

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Eiður Orri Ragnarsson í Hamingjuna

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Hinrik Hrafnsson skrifar undir sinn fyrsta samning

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Hilmir Christiansen skrifar undir sinn fyrsta samning

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Gylfi Þór Sigurðsson framlengir