Handknattleiksdeild Víkings hefur samið við Kristján Rafn Oddsson, sem gengur til liðs við félagið frá ÍH.
Kristján Rafn er ungur og efnilegur markmaður sem kemur til með að styrkja markmannsteymi Víkings. Hann hefur leikið með uppeldisfélagi sínu FH og öðlast þar góða reynslu í sterku handboltaumhverfi. Þá hefur Kristján Rafn einnig verið hluti af yngri landsliðum Íslands, sem undirstrikar hæfileika hans og þann metnað sem hann býr yfir.
„Við erum mjög ánægð með að fá Kristján Rafn til liðs við okkur. Hann er ungur, metnaðarfullur og efnilegur markmaður sem hefur sýnt góða takta. Hann kemur úr góðu umhverfi og við teljum að hann geti tekið áframhaldandi skref hjá Víkingi,“ segir Aðalsteinn Eyjólfsson, þjálfari Víkings.
Koma Kristjáns Rafns er liður í áframhaldandi uppbyggingu meistaraflokks karla hjá Víkingi, þar sem markmiðið er að byggja upp sterkan og samkeppnishæfan leikmannahóp fyrir komandi verkefni.
Handknattleiksdeild Víkings býður Kristján Rafn hjartanlega velkominn í Fossvoginn og hlakkar til að sjá hann í Víkingstreyjunni.
Áfram Víkingur!❤️🖤