
Mánudaginn 1. júní fór fram uppskeruhátíð barna- og unglingaráðs handknattleiksdeildar Víkings í Virkinu þar sem saman komu iðkendur, foreldrar og þjálfarar til að fagna glæsilegu handboltatímabili sem nú er að baki. Yngstu flokkar félagsins, frá 5. til 8. flokki, komu saman og var þar öllum iðkendum afhent viðurkenningarskjöl fyrir þátttöku sína á tímabilinu og þeir sem þóttu hafa staðið sérstaklega upp úr í 5.-6. flokki að mati þjálfara hlutu bikar. Boðið var upp á grillaðar pylsur og ríkti mikil stemning meðal gesta. Einnig fór fram hin árlega foreldrakeppni þar sem foreldrar mættu þjálfurum í handbolta.
Síðar um kvöldið fór fram lokahóf fyrir 3. og 4. flokk karla og kvenna. Þar voru veitt verðlaun til þeirra leikmanna sem þjálfarar töldu hafa staðið sig sérstaklega vel á tímabilinu. Að lokinni verðlaunaafhendingu nutu iðkendur og þjálfarar saman pizzuveislu frá Domino’s.
Handboltastarfið hjá Víkingi heldur áfram að vaxa og dafna. Uppbyggingin innan deildarinnar hefur verið einstaklega öflug undanfarin ár og það er virkilega ánægjulegt að fylgjast með framförum og árangri allra iðkenda félagsins. Í dag eru um 550 iðkendur skráðir í handbolta hjá Víkingi, sem gerir félagið að einu fjölmennasta handknattleiksfélagi landsins. Víkingur er afar stoltur af öllum sínum iðkendum, þjálfurum og sjálfboðaliðum sem leggja sitt af mörkum til að skapa öflugt og jákvætt umhverfi fyrir unga handknattleiksmenn. Við óskum öllum verðlaunahöfum innilega til hamingju og þökkum fyrir frábært tímabil.
Áfram Víkingur!❤️🖤
Verðlaunahafar á uppskeruhátíðinni:
6. flokkur karla Víkin:
Ari Már Helgason – Liðsmaður ársins yngra ár
Viktor Örn Jónasson – Víkingur Ársins yngra ár
Tryggvi Baldursson – Liðsmaður ársins eldra ár
Elías Davíð Hrafnsson – Víkingur ársins eldra ár
6. flokkur karla Virkið:
Björn Elí Bjarnason – Víkingur ársins eldra ár
Vilhjálmur Ellert Marteinsson – Liðsmaður ársins eldra ár
Arnþór Ásgeirsson – Víkingur ársins yngra ár
Benedikt Arnór Halldórsson – Liðsmaður ársins yngra ár
6. flokkur kvenna:
Havy Alda Pollock – Víkingur ársins eldra ár
Kristín Anna Magnadóttir – Liðsmaður ársins eldra ár
Júlía Björk Ívarsdóttir – Víkingur ársins yngra ár
Ingibjörg Ólöf Þórdísardóttir – Liðsmaður ársins yngra ár
5. flokkur karla:
Grettir Hrafn Finnsson – Víkingur ársins eldra ár
Sölvi Steinn Guðnason – Liðsmaður ársins eldra ár
Gylfi Þór Markússon – Víkingur ársins yngra ár
Atli Steinn Aðalsteinsson – Liðsmaður ársins yngra ár
5. flokkur kvenna:
Gréta Björk Hjaltested – Víkingur ársins eldra ár
Elísabet Hanna Halldórsdóttir – Liðsmaður ársins eldra ár
Roberta Ermane – Víkingur ársins yngra ár
Arnbjörg Hekla Jóhannsdóttir – Liðsmaður árins yngra ár
4. flokkur karla:
Hinrik Aron Hrafnsson – Besti varnarmaður eldra ár
Hallgrímur Helgi Jónasson – Besti sóknarmaður eldra ár
Hlynur Rafn Sólbergsson – Mestu framfarir eldra ár
Steinar Örn Vilhjálmsson -Víkingur ársins eldra ár
Styrmir Baldursson – Besti varnarmaður yngra ár
Stefán Hrafn Högnason – Besti sóknarmaður yngra ár
Hlynur Orri Ingólfsson – Mestu framfarir yngra ár
Víkingur Snorri Þráinsson – Víkingur ársins ýngra ár
4. flokkur kvenna:
Ísold Salóme Sanchez – Besti varnarmaður
Tinna Víðisdóttir – Besti sóknarmaður
Hallfríður Helga Arnórsdóttir – Mestu framfarir eldra ár
Rebekka Sigurðardóttir – Mestu framfarir yngra ár
Mirra Mjöll Arnarsdóttir – Víkingur ársins
3. flokkur karla:
Daníel Breki Harrason – Besti varnarmaður
Reginn Thoroddsen Friðriksson – Besti sóknarmaður
Nathaniel Þór Palce – Mestu framfarir
Ísak Jón Sandholt Ingimarsson – Víkingur ársins
3. flokkur kvenna:
Emilía Ína Burknadóttir – Besti sóknarmaður
Elsa Día Hilmarsdóttir – Mestu framfarir
Valgerður Elín Snorradóttir – Besti varnarmaður og Víkingur ársins