
Kæru handboltaunnendur Víkings,
Við höfum frábærum fréttum að deila! Meistaraflokkar karla og kvenna hjá Víkingi eru að stíga upp í Olísdeildina á næsta tímabili. Karlaliðið var með verðskuldað 1. sæti í Grill-66 deildinni og kvennalið með 3. sæti, ásamt þeirri gleðilegu ákvörðun HSÍ þings að fjölga liðum úr 8 í 10 á kvennadeild.
Markmiðið er skýrt, við ætlum að gefa handboltanum í Víkingi þann sess sem hann á skilið. Við byggjum á sterkri og sögulegri hefð, ásamt gríðarlega vaxandi áhuga innan félagsins. Iðkendafjöldi yngri flokka hefur aldrei verið meiri í sögu deildarinnar og er starfið orðið eitt það umsvifamesta á landinu. Meistaraflokkunum er ætlað að vera fyrirmynd og stökkpallur fyrir þessa efnilegu iðkendur, leið þeirra yfir á keppnisvöllinn.
Þetta er sameiginlegt verkefni okkar allra.
Við þurfum stuðning þinn.
Fáar hendur hafa unnið mikið og gott starf í vetur og við erum þakklát öllum sjálfboðaliðum. En til að tryggja rekstur og umgjörð meistaraflokkanna þarf meira til og fjárhagslegur stuðningur við meistaraflokkana er mikilvægur í okkar starfi.
Við hvetjum alla félagsmenn og velunnara félagsins til að styðja við Víking með því að greiða 2.500 kr. valgreiðslukröfuna sem var send í heimabanka í dag, hver króna skiptir máli. Ef einhverjir vilja leggja til hærri upphæð er hægt að leggja inn á reikning Handknattleiksdeildar Víkings.
Hefur þú ekki fengið valkröfu í bankann þinn? Sendu okkur skilaboð á [email protected] og við lögum það.
Við minnum á að framlög eru frádráttarbær skatti þar sem Handknattleiksdeild Víkings er skráð á almannaheillaskrá.
Með samtakamætti eru okkur allir vegir færir — og við treystum á þig!
Með von um góðar viðtökur og þakklæti, Víkingur Handknattleiksdeild❤️🖤