Ragnar Hermannsson ráðinn styrktarþjálfari hjá Víkingi

Ragnar Hermannsson hefur verið ráðinn styrktarþjálfari meistaraflokka handknattleiksdeildar Víkings.

Raggi var styrktarþjálfari hjá karlaliði Víkings í vetur sem skilaði sér svo sannarlega í auknum árangri og betra þreki inni á vellinum.

Það er því mikið ánægjuefni að Raggi muni einnig sjá um styrktarþjálfun kvennaliðsins á komandi tímabili þar sem bæði lið Víkings í meistaraflokki munu spila í efstu deild. Um þessar mundir er verið að leggja lokahönd á frábæra og endurbætta lyftingar- og endurheimtaraðstöðu í Virkinu í Safamýri og eru styrktaræfingar þegar komnar á fullt hjá báðum liðum.

Aðstaðan hjá félaginu hefur verið góð undanfarin ár en með nýjum endurbótum hefur hún farið á annað plan. Nú er að finna enn betri aðstöðu fyrir styrktar- og endurheimtarvinnu, meðal annars með gufu, heitum og köldum potti ásamt glæsilegum og endurbættum tækjasal sem skapar frábæra aðstöðu fyrir leikmenn til að hámarka árangur sinn.

Raggi er virkilega spenntur fyrir verkefninu framundan og hlakkar til að koma inn í styrktarþjálfun kvennaliðsins líka. Hann segir það sérstaklega spennandi að fá að vinna í þessari nýju og bættu aðstöðu og telur hana skapa enn sterkari grunn fyrir bæði lið félagsins. Þá nefnir hann einnig að innan félagsins séu frábærir þjálfarar og faglegt umhverfi sem geri verkefnið enn skemmtilegra og metnaðarfyllra.

Áfram Víkingur!❤️🖤

Aðrar greinar

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Telma Ívarsdóttir í Hamingjuna

Forsíðufrétt, Handbolti

Frábær árangur hjá yngri kvennaflokkum Víkings á Partille Cup

Knattspyrna, Forsíðufrétt, Handbolti

Víkingur og BUR bjóða upp á ný sumarnámskeið í ágúst

Forsíðufrétt, Handbolti

Gísli Seinar ráðinn sem þjálfari hjá Víkingi

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Eiður Orri Ragnarsson í Hamingjuna

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Hinrik Hrafnsson skrifar undir sinn fyrsta samning