Sumarnámskeið Víkings í borðtennis! Skráning er opin

Borðtennisdeild Víkings mun bjóða upp á sumarnámskeið fyrir krakka 9 ára og eldri!☀️🏓
Farið verður í helstu grunnatriði íþróttarinnar og lögð verður áhersla á að kynnast íþróttinni í gegnum skemmtilega blöndu af leikjum og grunnæfingum. Einnig verður farið í helstu tækniatriði eins og aldur og geta leyfir. 
Umsjónarmaður námskeiðanna er Benedikt Aron Jóhannsson, unglingalandsliðsmaður, Íslandsmeistari unglinga og bronsverðlaunarhafi á Íslandsmóti fullorðinna 2026. Benedikt er þjálfari barna- og unglingaflokka Víkings, hefur lokið fyrsta stigs þjálfaranámskeiði ÍSÍ og fyrsta stigs þjálfaranámskeiði á vegum alþjóða borðtennissambandsins.
Hvert námskeið er vika í senn, fyrir utan fyrstu vikuna, og eru námskeiðin eftirfarandi:
11. og 12. júní, klukkan 9-13. Verð 5.000 kr.
15.-19. júní (4 dagar), klukkan 9-13. Verð: 10.000 kr.
22.-26. júní, klukkan 9-13 alla daga nema til klukkan 12 á miðvikudegi. Verð: 12.000 kr.
29. júní – 3. júlí, klukkan 9-13 alla daga nema til klukkan 12 á miðvikudegi. Verð: 12.000 kr.
6.-10. júlí, klukkan 9-13 alla daga nema til klukkan 12 á miðvikudegi. Verð: 12.000 kr.
13.-17. júlí, klukkan 9-13 alla daga. Verð: 12.000 kr.
Hámarksfjöldi á hvert námskeið: 8 krakkar.
Skráning er opin og fer fram í gegnum Abler.
Boðið verður upp á námskeið í ágúst, eftir verslunarmannahelgi. Fyrirkomulag þeirra námskeiða verður auglýst síðar.
Áfram Víkingur!❤️🖤

Aðrar greinar

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Telma Ívarsdóttir í Hamingjuna

Forsíðufrétt, Handbolti

Frábær árangur hjá yngri kvennaflokkum Víkings á Partille Cup

Knattspyrna, Forsíðufrétt, Handbolti

Víkingur og BUR bjóða upp á ný sumarnámskeið í ágúst

Forsíðufrétt, Handbolti

Gísli Seinar ráðinn sem þjálfari hjá Víkingi

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Eiður Orri Ragnarsson í Hamingjuna

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Hinrik Hrafnsson skrifar undir sinn fyrsta samning