Þorgeir Bjarki Davíðsson gengur til liðs við Víking

Handknattleiksdeild Víkings hefur samið við Þorgeir Bjarka Davíðsson um að leika með meistaraflokki karla á komandi tímabili í Olís deild karla. Þorgeir kemur til félagsins frá Gróttu þar sem hann hefur verið lykilleikmaður undanfarin tímabil.

Þorgeir er örvhent skytta og hornamaður sem mun styrkja leikmannahóp Víkings verulega fyrir komandi verkefni í efstu deild. Með reynslu sinni, fjölhæfni og leikskilningi mun hann gefa liðinu aukna breidd og mikilvæga reynslu inn í krefjandi tímabil í Olís deildinni.

Víkingur tryggði sér sæti í Olís deildinni eftir sigur í Grill 66 deildinni á nýliðnu tímabili og hefur félagið verið markvisst að styrkja hópinn fyrir verkefnin fram undan.

Aðalsteinn Eyjólfsson, þjálfari meistaraflokks karla og yfirmaður handknattleiksmála hjá Víkingi, segir komu Þorgeirs mikilvæga fyrir liðið:

„Þorgeir er leikmaður sem kemur með mikla reynslu og gæði inn í okkar hóp. Hann getur leyst fleiri en eina stöðu, er sterkur karakter og hefur mikinn vilja til að hjálpa liðinu að ná árangri. Við teljum að hann muni styrkja okkur mikið bæði innan vallar og utan.“

Þorgeir segist spenntur fyrir nýju verkefni með Víkingi:

„Það er mikill metnaður í kringum Víking og spennandi verkefni fram undan í Olís deildinni. Mér líst mjög vel á hópinn og umgjörðina hjá félaginu og hlakka mikið til að byrja.“

Handknattleiksdeild Víkings býður Þorgeir Bjarka hjartanlega velkominn í Víking og hlakkar til að sjá hann í rauðu og svörtu á komandi tímabili.

Áfram Víkingur!❤️🖤

Aðrar greinar

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Telma Ívarsdóttir í Hamingjuna

Forsíðufrétt, Handbolti

Frábær árangur hjá yngri kvennaflokkum Víkings á Partille Cup

Knattspyrna, Forsíðufrétt, Handbolti

Víkingur og BUR bjóða upp á ný sumarnámskeið í ágúst

Forsíðufrétt, Handbolti

Gísli Seinar ráðinn sem þjálfari hjá Víkingi

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Eiður Orri Ragnarsson í Hamingjuna

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Hinrik Hrafnsson skrifar undir sinn fyrsta samning