Lokahóf handknattleiksdeildar Víkings 2026

Tímabilinu 2025–2026 formlega lokið hjá meistaraflokkum Víkings ❤️🖤

Lokahóf meistaraflokka Víkings fór fram miðvikudagskvöldið 13. maí, í veislusalnum í Virkinu þar sem leikmenn og þjálfarar komu saman og fögnuðu farsælu tímabili. Boðið var upp á veitingar frá Kjötkompaníinu og farið var yfir árangur liðanna sem var frábær á liðnu tímabili.

Meistaraflokkur karla átti glæsilegt tímabil þar sem liðið sigraði Grill-66 deild karla og tryggði sér þar með sæti í Olís deild karla á næsta tímabili. Kvennalið Víkings hafnaði í þriðja sæti Grill-66 deildar kvenna. Á ársþingi HSÍ sem haldið var 8. maí síðastliðinn var samþykkt ályktun um fjölgun liða í úrvalsdeild kvenna. Samkvæmt henni verður liðunum fjölgað úr átta í tíu og því mun kvennalið Víkings einnig leika í Olís deild kvenna á næsta tímabili.

Fráfarandi þjálfari meistaraflokks kvenna, Sebastian Alexanderson, fékk sérstakar þakkir fyrir unnin störf í þágu félagsins. Einnig var Jóhanni Reyni Gunnlaugssyni þakkað fyrir sitt framlag til félagsins og fékk hann málverk að gjöf.

Að venju voru veitt verðlaun til leikmanna fyrir framlag sitt á tímabilinu. Verðlaun voru veitt fyrir besta leikmanninn, efnilegasta leikmanninn og besta liðsfélagann.

Verðlaunahafar tímabilsins voru:

Kvennaflokkur
Besti leikmaður: Valgerður Elín Snorradóttir
Efnilegasti leikmaður: Emilía Ína Burknadóttir
Besti liðsfélaginn: Hafdís Shizuka Iura

Karlaflokkur
Besti leikmaður: Ísak Óli Eggertsson
Efnilegasti leikmaður: Daði Bergmann Gunnarsson
Besti liðsfélaginn: Jóhann Reynir Gunnlaugsson

Handknattleiksdeild Víkings óskar öllum verðlaunahöfum innilega til hamingju og þakkar leikmönnum, þjálfurum, sjálfboðaliðum og samstarfsaðilum kærlega fyrir frábært tímabil. Mikil tilhlökkun er fyrir komandi tímabili þar sem bæði karla- og kvennalið félagsins munu leika í efstu deild.

Áfram Víkingur!❤️🖤

Aðrar greinar

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Tilkynning frá knattspyrnudeild Víkings

Forsíðufrétt

Tímamótasamningur um uppbyggingu á athafnasvæðum Víkings

Forsíðufrétt, Handbolti

Stefán Hrafn valinn í lokahóp U-15 ára landsliðs karla

Forsíðufrétt, Handbolti

Víkingur 2 er deildarmeistari í 2. deild karla!

Forsíðufrétt, Borðtennis

Lið karla og kvenna í 1. deild Víkings Íslandsmeistarar

Forsíðufrétt

Skráning hefur opnað í heilsueflingu 60 ára og eldri