
Knattspyrnufélagið Víkingur hefur náð tímamótasamkomulagi við Reykjavíkurborg um framtíðaruppbyggingu á athafnasvæðum Víkings við Traðarland 1 og Safamýri 26. Samningurinn, sem nær yfir eignarhald, uppbyggingu og viðhald íþróttamannvirkja Víkings, var samþykktur einróma í borgarráði Reykjavíkur fimmtudaginn 7. maí.
Uppbyggingarsamningur Víkings hefur átt sér langan aðdraganda en borgarráð samþykkti árið 2008 að gefa félaginu fyrirheit um stækkun á athafnasvæði sínu inn á svæði Stjörnugrófar 18, sem átti að taka gildi árið 2016. Árið 2018 var unnin ítarleg skýrsla af hálfu Víkings og Reykjavíkurborgar um framtíðaraðstöðu félagsins þar sem áhersla var lögð á góða nýtingu mannvirkja, þjónustu við íbúa og heilsueflingu. Jafnframt var unnin greining á bættri aðkomu að svæði Víkings við Traðarland 1 og settar upp sviðsmyndir um framtíðaruppbyggingu á athafnasvæði félagsins. Hins vegar varð ekki af fyrirhugaðri uppbyggingu mannvirkja og stækkun athafnasvæðis félagsins við Traðarland næstu ár þar á eftir. Eftir ítrekuð erindi frá félaginu til Reykjavíkurborgar var í ágúst 2025 samþykkt innan borgarráðs að gengið yrði til samningaviðræðna við Víking um uppbyggingu á athafnasvæði félagsins. Verkefni samningateymisins voru:
Það er mikið fagnaðarefni að Víkingur og Reykjavíkurborg hafa nú loks náð samkomulagi um löngu lofaða uppbyggingu og stækkun á athafnasvæði Víkings. Samningurinn er ítarlegur og tekur fyrst og fremst mið af þörfum félagsins í heild og þörfum annarra hagsmunaaðila innan hverfa Víkings. Það er sömuleiðis gleðiefni að umferðaraðstæður og öryggi barna- og ungmenna verði stórbætt með breyttri aðkomu að félagsvæði Víkings við Traðarland. Sú uppbygging sem er framundan er til marks um skýran metnað Víkings til áframhaldandi framfara, öflugrar þróunar og árangurs á öllum sviðum félagsins til næstu ára og áratuga.
Samningurinn verður ítarlega kynntur félagsmönnum á aðalfundi Knattspyrnufélagsins Víkings síðar í maí mánuði.
Áfram Víkingur!❤️🖤
Myndir hér fyrir neðan sýna fyrirhugaða hönnum á félagsheimili Víkings að utanverðu að loknu viðhaldi og uppbyggingu á nýrri 3. hæð: