Lið Víkings í 1. deild kvenna varð í gær Íslandsmeistari í 1. deild kvenna í úrslitaleik eftir góðan sigur
á liði KR 4 – 0. Lið Víkings er skipað Evu Jósteinsdóttur, Magneu Ólafs, Anja Handén og Nevena Tasic.
Þess má geta að Eva Jósteinsdóttir fyrirliði Víkings er dóttir Jósteins Kristjánssonar fyrrum formanns Víkings.
Lið Víkings í 1. deild karla varð í gær Íslandsmeistari í 1. deild karla eftir úrslitaleik við lið BH frá Hafnarfirði
4 – 0. Lið Víkings er skipað þeim Alexander Klerc Fransson, Charlie Widing, Inga Darvis og Benedikt Aron Jóhannssyni.
Við óskum þeim innilega til hamingju með þennan glæsilega árangur!❤️🖤