Kristall Máni semur við Rosenborg
13. júlí 2022 | KnattspyrnaKristall Máni Ingason seldur til Rosenborg.
Víkingur hefur komist að samkomulagi við Rosenborg í Noregi um sölu á Kristali Mána Ingasyni.
Kristall kom til Víkings árið 2020 á lánssamningi frá FC Kaupmannahöfn en var síðan keyptur til félagsins í byrjun ársins 2021. Hann hefur leikið 69 leiki í öllum keppnum fyrir Víking og skorað í þeim 19 mörk. Kristall á einnig að baki 9 leiki að baki fyrir U 21 árs landsliðið og 2 leiki fyrir A landslið Íslands.
Kristall Máni hefur leikið gríðarlega vel í Víkingstreyjunni og verið frábær fyrirmynd fyrir yngri flokka félagsins.
Félagasskiptin ganga í gegn hinn 1. ágúst og mun Kristall því spila fyrir Víking út júlí.