Gestur Alexander Hafþórsson skrifar undir samning

Kæru Víkingar. Gestur Alexander Hafþórsson, fæddur árið 2010, hefur undirritað sinn fyrsta samning við knattspyrnudeild félagsins. Samningurinn gildir út árið 2028.

Gestur lék sinn fyrsta leik fyrir meistaraflokk í úrslitum Reykjavíkurmótsins þegar Víkingur vann góðan sigur á Þrótti 3-1. Hann hefur einnig leikið 5 landsleiki fyrir yngri landslið Íslands.

Gefum Kára Árnasyni yfirmanni knattspyrnumála orðið

Gestur er mjög efnilegur knattspyrnumaður sem við Víkingar bindum miklar vonir við. Hann er mjög öruggur með boltann, hefur góða fyrstu snertingu og getur haldið boltanum í þröngum aðstæðum undir pressu. Lágur þyngdarpunktur, snerpa og útsjónarsemi einkenna hans leik. Hann getur leyst allar stöður á miðjunni en líður best sem hálfsvæðisleikmaður framarlega á vellinum þar sem pressan hans nýtist vel. Með áframhaldandi þróun og vinnu hefur Gestur Alexander Hafþórsson alla burði til að verða mjög góður leikmaður í framtíðinni.

Til hamingju Gestur ❤️🖤

Aðrar greinar

Forsíðufrétt

Aðalfundur Knattspyrnufélagsins Víkings

Forsíðufrétt, Handbolti

Ragnar Hermannsson ráðinn styrktarþjálfari hjá Víkingi

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Bergdís Sveinsdóttir framlengir

Forsíðufrétt, Borðtennis

Sumarnámskeið Víkings í borðtennis! Skráning er opin

Forsíðufrétt

Skráningar á sumarnámskeið Víkings eru í fullum gangi!

Forsíðufrétt, Handbolti

Þorgeir Bjarki Davíðsson gengur til liðs við Víking