
Kæru Víkingar. Þrír ungir leikmenn meistaraflokks karla hafa framlengt samninga sína við knattspyrnudeild Víkings. Davíð Helgi Aronsson, Haraldur Ágúst Brynjarsson og Þorri Ingólfsson. Haraldur skrifar undir samning út árið 2027 og Davíð og Þorri skrifa undir samninga út árið 2029.
Davíð Helgi (f. 2007) stimplaði sig inní Íslenskan fótbolta í fyrra þegar hann var á láni hjá Njarðvík og var einn af bestu varnarmönnum deildarinnar og er hann einn allra efnilegasti hafsent landsins. Davíð á að baki 18 landsleiki fyrir yngri landslið Íslands og í þeim hefur hann skorað 1 mark.
Þorri (f.2009) er gríðarlega efnilegur sóknarmaður sem slegið hefur í gegn á undirbúningstímabilinu og er markahæsti leikmaður meistaraflokks. Þorri lék sína fyrstu leiki í Bestu deildinni árið 2025. Þorri á að baki 11 landsleiki fyrir yngri landslið Ísland og hefur skorað í þeim 1 mark.
Haraldur Ágúst (f.2007) er hægri bakvörður með mikinn drifkraft og metnað og byrjaði feril sinn í meistaraflokki á ekki verri leik en 0-7 sigri Víkings á KR í fyrra. Haraldur á að baki 10 landsleiki fyrir yngri landslið Íslands.
Knattspyrnudeild Víkings óskar Davíð, Haraldi og Þorra til hamingju með áfangann og við hlökkum mikið til að sjá þá á vellinum. 🖤❤️ Framtíðin er björt í Hamingjunni.