Einar Guðnason hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks kvenna í knattspyrnu til næstu þriggja ára. Hann tekur við starfinu af John Henry Andrews sem lét af störfum í byrjun vikunnar. Einar mun formlega taka við starfinu þegar hann kemur til landsins frá Svíþjóð á næstu dögum.
Einar hefur sinnt flestum hlutverkum hjá Víking áður en hann hélt til Svíþjóðar árið 2021. Hann spilaði upp alla yngri flokkana, var leikmaður í meistaraflokki, þjálfari yngri flokka, yfirþjálfari barna- og unglingaráðs og síðast aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla. Í Svíþjóð hefur Einar sinnt starfi „transition“ þjálfara hjá Örebro þar sem hann aðstoðaði leikmenn að taka skrefið úr akademíu og inn í aðalliðið. Þá hefur hann síðastliðin tvö tímabil þjálfað U-19 kvenna í akademíunni hjá Örebro.
Einar býr yfir gríðarlegri reynslu, þekkingu og Víkingshjarta sem leikmenn okkar og aðrir sem starfa í kringum félagið munu njóta góðs af. Knattspyrnudeild Víkings fagnar því að fá Einar aftur heim í hamingjuna og hlökkum við til að starfa með honum.
Víkingur TV náði tali af Einari sem er staddur í Svíþjóð.
Ég er virkilega stoltur að vera orðinn þjálfari meistaraflokks kvenna hjá Víkingi. Þetta er draumastarfið mitt sem ég hef haft á markmiðalistanum mínum í mörg ár. Tækifærið kom núna og því ekkert annað í stöðunni fyrir mig en að stökkva á það. Þau sem þekkja mig vita að ég hef mikinn metnað og ástríðu fyrir öllu því sem viðkemur Víkingi og ég ætla að leggja mitt af mörkum til að byggja ofan á það frábæra starf sem hefur verið unnið í Víkinni síðustu ár.