Stígur Diljan á reynslu hjá erlendum liðum
24. nóvember 2021 | KnattspyrnaStígur Diljan Þórðarson, sem skrifaði undir samning við meistaraflokk karla í knattspyrnu nú í haust hefur í nóvembermánuði haft í nógu að snúast. Hann hefur dvalið í Danmörku hjá FC Midjylland og hjá Benfica í Portúgal þar sem hann hefur verið til reynslu hjá báðum liðum við góðan orðstír.
Til gamans má geta þess að FC Midjylland er sem stendur í toppsæti dönsku úrvalsdeildarinnar. Fylgdarmaður Stígs hefur verið bróðir hans Aron Baldvin Þórðarson, þjálfari úr okkar röðum.
Stígur hefur sýnt að hann er í hópi efnilegustu leikmanna landsins og hafa fleiri erlend lið sýnt áhuga á að vinna með honum.