Herrakvöld Víkings 5. nóvember
22. október 2021 | KnattspyrnaHerrakvöld Íslands- og bikarmeistara Víkings verður haldið í Víkinni föstudagskvöldið 5. nóvember. Kóngurinn sjálfur, Bubbi Morthens, stígur á svið ásamt fleiri skemmtiatriðum. Nýkrýndir tvöfaldir meistarar Víkings verða á svæðinu og þetta er frábært tækifæri til að hitta gömlu félagana, nágrannana, vinina og fagna besta tímabili í sögu félagsins.
Veislukokkar frá Múlakaffi bjóða upp á glæsilegt steikarhlaðborð:
Aðalréttur: Grilluð nautalund ilmuð með villisveppum og trufflum og blóðbergskryddaður lambavöðvi.
Meðlæti: Kartöflusmælki, sveppir, rauðlaukur, grænkál og paprika, Sætkartöflusalat með trönuberjavinagrette og vatnakarsa Brokkolí, gulrætur og klettasalat með gremolata, grænt salat, kirsuberjatómatar, grillaður aspas, paprika og brauðteningar.
Sósur: Kremuð villisveppasósa og bernaisesósa.
Eftirréttur: Desertþrenna
Húsið opnar klukkan 18:00 með happy hour.
Þetta verður án nokkurs vafa glæsilegasta herrakvöld landsins.
Tryggið ykkur miða í tæka tíð!