Haukur Hinriksson

Haukur Hinriksson nýr framkvæmdarstjóri Víkings

Haukur Hinriksson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Knattspyrnufélagsins Víkings. Haukur sem er 34 ára hefur starfað sem yfirlögfræðingur KSÍ undanfarin 9 ár. Haukur tekur við stöðunni af Haraldi Haraldssyni sem hefur verið framkvæmdastjóri félagsins undanfarin 14 ár.
Haukur hefur sem yfirlögfræðingur KSÍ starfað við góðan orðstír að mörgum mikilvægum verkefnum sem snúa m.a. að leyfismálum, aga- og kærumálum, lögum og reglugerðum, leikmannasamningum og umboðsmönnum leikmanna, svo eitthvað sé nefnt.
Haukur útskrifaðist með BA gráðu og Meistaragráðu í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík en hann stundaði einnig nám við Université de Cergy Pontoise í París. Hann lauk einnig LL.M. námi í alþjóðlegri samninga- og gerðardómsrétti frá University of Fribourg, Sviss. Hann stundar nú nám í viðskiptafræði MM í stjórnun við Háskólann á Akureyri.
,,Við erum gríðarlega ánægð með þessa ráðningu og bjóðum Hauk hjartanlega velkominn til Víkings. Haukur var valinn úr hópi margra mjög hæfra einstaklinga sem sóttu um stöðuna í mjög faglegu ferli sem félagið fór í við val á framkvæmdarstjóra. Haukur þekkir vel til íþróttalífs hér á landi eftir farsælt starf hjá KSÍ auk þess sem mikil reynsla hans af þeim vettvangi mun nýtast félaginu afar vel í sínum næstu skrefum og framtíðarsýn.  Knattspyrnufélagið Víkingur hugsar hátt og hefur metnaðarfull markmið. Það er mjög spennandi vegferð og tímar framundan hjá félaginu okkar.”
Björn Einarsson
Formaður Aðalstjórnar
Knattspyrnufélagið Víkingur

Aðrar greinar

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Telma Ívarsdóttir í Hamingjuna

Forsíðufrétt, Handbolti

Frábær árangur hjá yngri kvennaflokkum Víkings á Partille Cup

Knattspyrna, Forsíðufrétt, Handbolti

Víkingur og BUR bjóða upp á ný sumarnámskeið í ágúst

Forsíðufrétt, Handbolti

Gísli Seinar ráðinn sem þjálfari hjá Víkingi

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Eiður Orri Ragnarsson í Hamingjuna

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Hinrik Hrafnsson skrifar undir sinn fyrsta samning