Frá vinstri á mynd, Kári Árnason, Björn Sigurbjörnsson og John Andrews

Björn Sigurbjörnsson ráðinn aðstoðarþjálfari

Björn Sigurbjörnsson var í dag ráðinn sem aðstoðarþjálfari í þjálfarateymi mfl. kvk Víkings.

Björn er uppalinn Víkingur og spilaði upp í gegn um alla yngri flokka félagsins. Hann spilaði sína fyrstu leiki með meistaraflokki í bikarkeppninni 1999 og á alls átta leiki með mfl. Víkings. Síðar spilaði hann með Þrótti, Aftureldingu og Leikni áður en hann endað leikmannaferilinn með Berserkjum 2010. Meðfram spilamennskunni hafði hann komið að þjálfun yngri flokka, bæði karla- og kvennaliða Víkings, en einnig hjá Þrótti, Fram og Val.

Þá tók hinn þjálfaraferillinn við. Björn var ráðinn til starfa sem aðstoðarþjálfari hjá sænska úrvalsdeildarfélaginu Kristianstads DFF fyrir tímabilið 2011 þar sem Elísabet Gunnarsdóttir hafði þá stýrt liðinu um tveggja ára skeið. Saman mynduðu þau sterkt þjálfarapar, sem átti eftir ná eftirtektarverðum árangri með félagið, en á tímabili sem teygði sig á annan áratug náðu þau tvisvar með liðið í úrslit sænsku bikarkeppninnar og tvö síðustu árin í þriðja sæti í deildinni og þar með þátttökurétt í meistaradeild Evrópu. Haustið 2021 söðlaði Björn hins vegar um og flutti heim til Íslands og tók þá við liði Selfoss og stýrði því í þrjú tímabil. Hann náði frábærum árangri með liðið á sínu fyrsta tímabili, bæði í deild og bikar, en tvö síðari tímabilin hallaði undan fæti og ákvað hann að segja upp samningi sinum við félagið.

Björn hefur alla tíð lagt mikla áherslu á ungliðastarf  þeirra félaga sem hann hefur komið að þjálfun hjá og að ungir uppaldir leikmenn fengju sín tækifæri. Alls fengu 12 uppaldar stúlkur Selfossliðsins sína fyrstu leiki á Íslandsmótum þau þrjú ár sem Björn var við stjórnvölinn þar. Með slíkum áherslum geta ungar Víkings stúlkur farið að hlakka til, því þar er efniviðurinn, líkt og val í yngri landslið Íslands á undanförnum misserum ber gott vitni um.

Það er því af mikilli hamingju sem Víkingar fagna komu Bjössa, enda hefur fjöldi Víkinga notið hans leiðsagnar bæði sem þjálfara og fyrrum kennara i Réttó.

Velkominn heim Bjössi, velkominn í Hamingjuna! ❤️🖤

 

Aðrar greinar

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Telma Ívarsdóttir í Hamingjuna

Forsíðufrétt, Handbolti

Frábær árangur hjá yngri kvennaflokkum Víkings á Partille Cup

Knattspyrna, Forsíðufrétt, Handbolti

Víkingur og BUR bjóða upp á ný sumarnámskeið í ágúst

Forsíðufrétt, Handbolti

Gísli Seinar ráðinn sem þjálfari hjá Víkingi

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Eiður Orri Ragnarsson í Hamingjuna

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Hinrik Hrafnsson skrifar undir sinn fyrsta samning