Kristófer kveður Hamingjuna
7. október 2024 | KnattspyrnaKristófer Sigurgeirsson hefur látið af störfum sem aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna í knattspyrnu. Kristófer kom til Víkings frá Breiðablik haustið 2023 og tók við starfi aðstoðarþjálfara í fullu starfi. Samhliða starfi sínu sem aðstoðarþjálfari meistaraflokks sinnti hann starfi þjálfara U-20 kvenna hjá félaginu við góðan orðstír. Knattspyrnudeild Víkings þakkar Kristófer vel unnin störf og óskar honum alls hins besta í næstu verkefnum.
Sjáumst í Hamingjunni Kristó! 🖤❤️