Davíð Helgi Aronsson framlengir út árið 2028
25. september 2024 | KnattspyrnaKnattspyrnudeild Víkings hefur framlengt samning sinn við Davíð Helga Aronsson. Davíð á 5 leiki með U16 og U17 landsliðum Íslands.
Davíð er uppalinn í Svíþjóð og flutti til landsins fyrir 2 árum. Hann er örvfættur miðvörður og er á yngsta ári í 2.flokki en við hann eru bundnar miklar vonir.
Davíð hefur staðið sig frábærlega síðan hann kom í Hamingjuna og spilaði sinn fyrsta leik í Bestu deildinni gegn KR nýlega.
Knattspyrnudeild Víkings tilkynnir því með mikilli hamingju að Davíð verður leikmaður félagsins út árið 2028 hið minnsta. 🖤❤️