fbpx

Víkingar styrkja lið sitt!

21. ágúst 2024 | Handbolti
Víkingar styrkja lið sitt!
Egill Már Hjartarson, Stefán Huldar Stefánsson, Kristján Helgi Tómasson og Ásgeir Snær Vignisson.

Víkingar halda ótrauðir áfram á þeirri vegferð að tryggja sér sæti meðal bestu handknattleiksliða Íslands þar sem Víkingar eiga heima. Þrátt fyrir hetjulega baráttu í efstu deild á síðasta leiktímabili féllu Víkingar naumlega niður í  Grilldeildina þar sem þeir ætla að gera stuttan stans.

Hinn reyndi handknattleiksþjálfari Aðalsteinn Eyjólfsson hefur verið ráðinn sem aðalþjálfari meistaraflokks karla og yfirmaður handknattleiksmála félagsins, en Aðalsteinn hefur þjálfað við góðan orðstír í Þýskalandi og Sviss.

Aðalsteinn hefur í sumar gengið frá samningum við leikmenn Víkings sem voru með lausa samninga auk þess að hafa styrkt liðið með nýjum leikmönnum.

Nýir leikmenn Víkings eru þeir Ásgeir Snær Vignisson, Egill Már Hjartarson og Kristján Helgi Tómasson. Þá hefur Stefán Huldar Stefánsson gert tveggja ára samning við liðið en hann gekk til liðs við Víking á skammtímasamningi um síðustu áramót.

Ásgeir Snær Vignisson

„Við erum mjög ánægð með að hafa samið við Ásgeir Snæ til næstu 2 ára. Ásgeir kemur til með að leika lykilhlutverk í uppbyggingu meistaraflokks karla í Víkingi.  Ásgeir er vinstrihandarskytta með góða skotgetu utan af velli og með góðan leikskilning.  Ásgeir kemur til okkar með  reynslu eftir að hafa spilað með sterkum liðum í  Olísdeild karla og reynt fyrir sér í atvinnumennsku í Noregi og Svíþjóð“

segir Aðalsteinn Eyjólfsson þjálfari og segist sannfærður um að Ásgeir Snær nái að sýna sínar bestu hliðar í Víkingsbúningnum eftir axlarmeiðsli síðustu ára.

 Egill Már Hjartarson

 

„Egill Már er örvhent skytta sem kemur til með að fá tækifæri til að þróa sinn leik og veita Ásgeiri Snæ harða samkeppni í vetur.  Egill er hávaxinn leikmaður með góða skotgetu. Ég er viss um að í búningi Víkings geti Egill Már með vinnusemi tekið næsta skref framávið á sínum ferli“

Samningur Egils Más er til tveggja ára.

Kristján Helgi Tómasson

Kristján Helgi kemur til Víkings á lánssamningi frá Stjörnunni.

 „Kristján Helgi er vinstri skytta sem kemur að láni frá Stjörnunni. Hann er ungur og kröftugur leikmaður sem hefur verið viðloðandi yngri landsliðin síðastliðin ár og á framtíðina fyrir sér.  Við erum viss um að Kristján eigi eftir að nýtast okkur vel í ár og fá þannig gott tækifæri til þess að þróa og þroska leik sinn“

segir Aðalsteinn.

Víkingar vilja þakka Stjörnunni fyrir þægilegt og gott samstarf við að gera þennan lánsamning að veruleika.

Stefán Huldar Stefánsson

„Stefán er reynslumikill markmaður sem kemur til með reynast okkur mikilvægur hlekkur á okkar vegferð. Stefán hefur átt við erfið hnémeyðsli að stríða undanfarin misseri, en hann er á góðri leið í sinni endurhæfingu. Við erum við sannfærð um að koma hans í liðið muni styrkja hópinn umtalsvert. Frammistaða Stefáns í deildinni áður en að meiðslin bremsuðu hann af var framúrskarandi“

segir Aðalsteinn.

Samningur Stefáns Huldars er  til 2 ára.