Bodylab og Víkingur undirskrift
Frá vinstri á mynd : Jón Guðni Fjóluson, Stefán F. Jónsson, Heimir Gunnlaugsson, Linda Líf Boama

Víkingur og Bodylab í samstarf út árið 2026

Knattspyrnudeild Víkings og Bodylab hafa undirritað samstarfssamning  sem gildir út árið 2026. Samstarfið felur í sér að meistaraflokkar félagsins  munu einungis nota fæðubótarefni frá Bodylab fyrir og eftir æfingar og leiki.

Bodylab er danskt heilsu- og lífstílsvörumerki sem hefur notið gríðarlegra vinsælda í Skandinavíu og víðar síðastliðin ár.  Bodylab eru með mikið úrval af hinum ýmsu próteinbættu vörum og er duglegt að koma með skemmtilegar nýjungar inn á markaðinn.

Það voru Heimir Gunnlaugsson formaður knattspyrnudeildar Víkings og Stefán F. Jónsson rekstrarstjóri Bodylab á Íslandi sem undirrituðu samninginn í Hæðargarði, lyftingarsal Víkings.  Ásamt þeim voru leikmenn frá Knattspyrnudeild, Jón Guðni Fjóluson og Linda Líf Boama.

Stefán F. Jónsson rekstrarstjóri Bodylab á Íslandi
„Það er afar ánægjulegt að Bodylab og Knattspyrnudeild Víkings hafi undirritað samstarfssamning þess efnis að karla og kvennalið meistarflokks félagsins muni nota fæðubótaefni frá Bodylab. Bodylab fæðubótaefni stuðla að auknum krafti, úthaldi, góðri endurheimt og vellíðan sem nauðsynleg eru fyrir íþróttafólk í krefjandi verkefnum”

Heimir Gunnlaugsson formaður knattspyrnudeildar Víkings.
“Það er mikið gleðiefni fyrir knattspyrnudeild Víkings að hefja samtarf við Bodylab. Karla og kvennalið félagsins eru undir miklu álagi og því mikilvægt að leikmenn hafi aðgang að bestu mögulegu fæðubótarefnum.“

Aðrar greinar

Víkingur TV, Knattspyrna

Ármann Ingi Finnbogason í Hamingjuna!

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Tveir leikir laugardaginn 31.janúar

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Ásta Sylvía Jóhannsdóttir skrifar undir sinn fyrsta samning

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Shaina Faiena Ashouri skrifar undir nýjan samning

Skíði, Forsíðufrétt

Elín Elmarsdóttir Van Pelt keppir á Vetrarólympíuleikunum

Forsíðufrétt

Víkingur stofnar nýjan miðlægan samfélagsmiðil