Sumardagurinn fyrsti í Safamýri
22. apríl 2024 | FélagiðSumardaginn fyrsta, 25.apríl, verður fagnað með hoppuköstulum, pylsum og gleði á milli klukkan 12 og 14 við Íþróttahús Víkings í Safamýrinni.
Knattspyrnufélagið Víkingur, ásamt Frístundaheimilinu Álftabæ, Félagsmiðstöðinni Tónabæ og foreldrafélagi Álftamýrarskóla, hafa ákveðið að slá í hátíð á Sumardaginn fyrsta fyrir íbúa hverfisins.
Hátíðarhöldin hafa legið niðri síðast liðinn ár en stefnum við á að gera þetta að árlegum viðburði þar sem við getum komið saman og fagnað nýju sumri!
Boðið verður upp á kaffi og kleinur, hoppukastala, andlitsmálningu og pylsusölu.
Sannkölluð skemmtun fyrir alla fjölskylduna!