Kristín Erla Ó. Johnson í Víking
26. febrúar 2024 | KnattspyrnaKristín Erla Ó. Johnson (f.2002) hefur skrifað undir samning við Knattspyrnudeild Víkings en samningurinn er til tveggja ára.
Kristin Erla, sem er örfættur varnarmaður, kemur til Víkings frá KR en hún á að baki 82 meistaraflokksleiki og 2 mörk ásamt 12 leiki með U16 og U-17 ára landsliðum Íslands. Kristín Erla stundar nám og spilar með liði Wake Forest University í bandaríska háskólaboltanum.
„Hér er á ferðinni gríðarlega góður og jafnframt reynslumikill leikmaður sem félagið bindur miklar vonir við á næstu árum“
Knattspyrnudeild Víkings býður Kristínu hjartanlega velkomna í Hamingjuna. Áfram Víkingur ❤️🖤