Arna og Anika í U-16
23. janúar 2024 | Knattspyrna, FélagiðÞórður Þórðarson, landsliðsþjálfari U16 kvenna, hefur valið hóp fyrir æfingar dagana 5.-6. febrúar 2024. Æfingarnar fara fram í Miðgarði, knattspyrnuhúsi í Garðabæ.
Víkingur á tvo fulltrúa í hópnum, þær Aniku Jónu Jónsdóttur og Örnu Ísfold Stefánsdóttur leikmenn 3. flokks hjá Viking.
Knattspyrnudeild Víkings óskar Aniku og Örnu til hamingju með valið og góðs gengis á æfingunum.