Í Víkinni og Safamýrinni er líf og fjör frá morgni til kvölds, virka daga sem um helgar. Fólk á öllum aldri hreyfir sig í heilsubótarskyni, æfir stíft keppnisíþróttir og allt þar á milli.

Í Víkinni er að finna sal til innanhússíþrótta af ýmsu tagi og á vallarsvæðinu utan dyra er knattspyrnuvöllurinn glæsilegi með stúku sér við hlið, gervigrasvöllur, grasvöllur til æfinga og tennisvellir. Svo má ekki gleyma hátíðarsalnum þar sem margur maðurinn hefur fagnað merkum áfanga í lífi sínu eða annarra:, til dæmis stórafmæli eða fermingu.

Víkingur leigir sömuleiðis út sali fyrir fundi eða aðrar samkomur og mannfagnaði.

Í Safamýrinni er sömuleiðis að finna íþróttasal, gervigrasvöll og grasvöll.

Í Safamýrinni er einnig glæsilegur hátíðarsalur sem hentar vel fyrir fundi aðrar samkomur og mannfagnaði

Víkin

Í Víkinni er að finna sal til innanhússíþrótta af ýmsu tagi og á vallarsvæðinu utan dyra er knattspyrnuvöllurinn glæsilegi með stúku sér við hlið, gervigrasvöllur, grasvöllur til æfinga og tennisvellir. Svo má ekki gleyma hátíðarsalnum þar sem margur maðurinn hefur fagnað merkum áfanga í lífi sínu eða annarra:, til dæmis stórafmæli eða fermingu.

Víkingur leigir sömuleiðis út sali fyrir fundi eða aðrar samkomur og mannfagnaði.

Fyrirspurnir um sal í Víkinni

Hægt er að hafa samband við skrifstofu Víkings varðandi salinn í Víkinni í sima 519-7600 eða senda tölvupóst á [email protected]

Safamýri

Í Safamýrinni er að finna sal til innanhússíþrótta af ýmsu tagi og á vallarsvæðinu utan dyra er  gervigrasvöllur og grasvöllur til æfinga .

Einnig er glæsilegur hátíðarsalur í Safamýrinni sem hentar vel fyrir fundi aðrar samkomur og mannfagnaði

Víkingur leigir sömuleiðis út sali fyrir fundi eða aðrar samkomur og mannfagnaði.

Fyrirspurnir um sal í Safamýrinni

Hægt er að hafa samband við skrifstofu Víkings varðandi salinn í Safamýrinni í sima 519-7600 eða senda tölvupóst á [email protected]