ÞÚ SEM YNGRI IÐKANDI:
- Gera alltaf þitt besta.
- Virða alltaf reglur og venjur varðandi heiðarleika í íþróttum.
- Sýnir öllum iðkendum virðingu, jafnt samherjum sem mótherjum.
- Þræta ekki eða deila við dómarann.
- Sýnir öðrum virðingu og ert heiðarlegur og opinn gagnvart þjálfara og forystufólki félagsins.
- Forðast neikvætt tal eða niðurlægjandi köll á vettvangi félagsins.
- Koma fram við aðra eins og þú vilt að aðrir komi fram við þig.
- Ert stundvís og háttvís á öllum viðburðum á vegum félagsins.
- Taka þátt í íþróttum á eigin forsendum
- Berð ætíð virðingu fyrir nafni og búningi félagsins.
ÞÚ SEM ELDRI IÐKANDI:
- Gera alltaf þitt besta.
- Virða alltaf reglur og venjur varðandi heiðarleika í íþróttum.
- Sýnir öllum iðkendum virðingu, jafnt í meðbyr sem mótbyr.
- Þræta ekki eða deila við dómarann.
- Hefur heilbrigði alltaf að leiðarljósi og tekur aldrei áhættu með heilsu þína.
- Neytir aldrei ólöglegra lyfja til að bæta árangur þinn.
- Bera virðingu fyrir hæfileikum og getu annarra.
- Forðast neikvæð ummæli eða skammir.
- Ert heiðarlegur og opinn gagnvart þjálfara og forystufólki félagsins sem ber ábyrgð á þér við æfingar og keppni.
- Berð sjálfur höfuðábyrgð á framförum þínum og þroska.
- Ert ávalt til fyrirmyndar í framkomu, jafnt utan vallar sem innan.
- Hefur hugfast að þú ert fyrirmynd yngri iðkenda.
- Sýnir aldrei eða leyfir ógnandi eða ofbeldisfulla tilburði.
- Forðast of náið samneyti og náin samskipti við þjálfara þína.
- Skalt ætið bera virðingu fyrir nafni og búningi félagsins.
- Forðast neikvætt tal eða niðurlægjandi köll um samherja, mótherja, dómara, þjálfara eða starfsmenn félagsins.
- Koma fram við aðra eins og þú vilt að aðrir komi fram við þig.
- Mætir vel á æfingar, ert stundvís og háttvís
- Taka þátt í íþróttum á eigin forsendum
ÞÚ SEM ÞJÁLFARI:
- Ert fyrirmynd iðkenda bæði innan vallar og utan.
- Hefur ávallt í huga að hlutverk þitt er að byggja upp iðkendur bæði líkamlega og andlega.
- Styrkir jákvæða hegðun og framkomu.
- Sérð til þess að þjálfun og keppni sé við hæfi iðkenda.
- Heldur á lofti heiðarleika innann íþróttarinnar.
- Viðurkennir og virðir ákvarðanir sem dómarar taka.
- Kennir iðkendum að bera ábyrgð á eigin hegðun og framförum í íþróttinni.
- Ert réttlátur, umhyggjusamur og heiðarlegur gagnvart iðkendum.
- Forðast neikvæða gagnrýni.
- Setur ávalt heilsu, öryggi og heilbrigði iðkenda í forsæti.
- Sýnir umhyggju þeim iðkendum sem orðið hafa fyrir meiðslum
- Viðurkennir rétt iðkandans til þess að leita ráða frá öðrum þjálfurum.
- Sýnir aldrei eða leyfir ógnandi eða ofbeldisfulla tilburði.
- Forðast náið samneyti og óviðeigandi samskipti við iðkendur.
- Sinnir iðkendum á æfingum en þess utan skaltu halda faglegri fjarðlægð
- Beittu (iðkanda) aldrei kynferðislegu, líkamlegu eða andlegu áreiti.
- Notaðu samskipti í gegnum síma og internetið aðeins til boðunar æfinga og upplýsingagjafar.
- Ert meðvitaður um hlutverk þitt sem fyrirmynd, bæði utan vallar og innan.
- Talaðu alltaf gegn neyslu ólöglegra lyfja, fíkniefna, áfengis og tóbaks.
- Kemur eins fram við alla iðkendur
- Hafðu ávallt í huga að þú ert að byggja upp fólk, bæði líkamlega og andlega.
- Forðastu að vera einn með iðkanda.
- Berð ætíð virðingu fyrir félaginu og starfsmönnum þess.
ÞÚ SEM STJÓRNARMAÐUR EÐA STARFSMAÐUR:
- Stendur vörð um anda og gildi félagsins.
- Kemur fram við alla félagsmenn sem jafningja.
- Hefur ávallt lýðræðisleg vinnubrögð í heiðri.
- Heldur félagsmönnum vel upplýstum og gerir þá virka í ákvarðanatökum eins og hægt er.
- Ert ávallt til fyrirmyndar í hegðun og framkomu., bæði innan félags og utan.
- Tekur alvarlega þá ábyrgð sem þú hefur gagnvart félaginu og iðkendum.
ÞÚ SEM FORELDRI EÐA FORRÁÐAMAÐUR HAFÐU ÁVALT HUGFAST AÐ:
- Barnið þitt er í íþróttum á eigin forsendum.
- Þú átt að hvetja barnið þitt til þátttöku í íþróttum.
- Það er þitt hlutverk að hvetja barnið þitt til að fara eftir og virða reglur íþróttanna.
- Þú ert börnum fyrirmynd í því að taka ósigri af æðruleysi og sigri hrokalaust.
- Þú átt að kenna barninu að bera virðingu fyrir störfum þjálfarans.
- Þú átt að líta á dómarann sem leiðbeinanda barnsins þíns.
- Þú átt að styðja og hvetja öll börn og ungmenni – ekki bara þín eigin.+
- Vera jákvæður, bæði þegar vel gengur og þegar illa gengur.
- Aldrei má gera grín að barni eða hrópa að því ef það gerir mistök
- Meta þátttöku sjálfboðaliða hjá félaginu sem leggja grunn að starfi þess.
- Spyrja barnið hvort keppni eða æfingar hafi verið skemmtileg en eingöngu úrslit.