lesa frétt

Slæmt tap í Mosfellsbæ

6.3.2010

Afturelding byrjaði leikinn af krafti og komst í 2-0 og 4-1. Hjálmar og Einar skoruðu tvö fyrstu mörk Víkinga og Davíð minnkaði muninn í 4-3. Afturelding skoraði og Þröstur svaraði. Þá byrjaði óskiljanlegt fát í sókn og vörn hjá Víkingum og ekkert gekk upp hjá liðinu á meðan Afturelding bætti við hverju markinu á fætur öðru. Þeir komust í 9-4 áður en Einar náði að skora mark. Áfram hélt Afturelding að auka við forystuna og komst í 13-7 og 15-9. Víkingar náðu heldur að rétta hlut sinn undir lok hálfleiksins. Hjálmar minnkaði muninn í 15-10 og Gummi í 15-11. Davíð skoraði og kom stöðunni í 16-12. Svenni og Gummi bættu við tveimur mörkum fyrir Víkinga fyrir hlé en Afturelding átti síðasta mark hálfleiksins og leiddi í hálfleik með fjórum mörkum, 18-14.

Víkingar byrjuðu vel í seinni hálfleik og Hjálmar skoraði fyrsta mark Víkinga. Afturelding skoraði en Svenni hrökk heldur betur í gang og svaraði með tveimur þrumuskotum. Afturelding skoraði en Svenni og Davíð minnkuðu muninn í eitt mark. Afturelding skoraði tvö mörk en Svenni negldi tveimur inn í röð og minnkaði muninn aftur í eitt mark. Afturelding skoraði en Einar skoraði og síðan jafnaði Hjálmar leikinn í 23-23. Víkingar fengu síðan nokkur tækifæri til að komast yfir en nýttu þau ekki og Afturelding skoraði þrjú mörk í röð. Þá skoruðu Einar og Svenni og minnkuðu muninn í eitt mark og fjórar mínútur voru eftir leiks. Víkingar náðu ekki að skora meir í leiknum en Sveinni negldi meðal annars tveimur skotum í þverslána og Víkingar misnotuðu víti. Afturelding var sterkari síðustu mínúturnar og skorðuðu þrjú síðustu mörkin þegar Víkingar freistuðu þess að hleypa leiknum upp með því að leika maður á mann. Heimamenn sigruðu því með 29-25.


Það má vera lélegur andstæðingur sem lið sigrar með því að leika þokkalega í 2/3 hluta af leiknum en mjög illa þriðja part leiksins. Víkingar töpuðu leiknum á fyrstu 20 mínútunum þegar þeir létu Aftureldingu setja sig úr jafnvægi með aggressivum varnarleik. Þeir komu siðan vel til baka í seinni hálfleik en vantaði herslumuninn að láta kné fylgja kviði þegar þeir voru búnir að jafna leikinn. Með þessu tapi eru möguleikar liðsins næsta litlir að komast í umspil um sæti í efri deild. Það er verst er að það er engum um að kenna nema liðinu sjálfu. Halldór byrjaði í markinu og stóð sig vel. Hann varði 9 skot þann tíma sem hann stóð í markinu og sýndi það að hann á fullt erindi í leiki í meistaraflokki. Hann átti hins vegar ekki alltaf auðvelt með að verja skot sem komu óhindrað í gegnum götótta vörn. Bjössi kom í markið undir lok fyrri hálfleiks og varði eitt skot fyrir hlé. Hann varði síðan eins og berserkur í seinni hálfleik og tók 15 skot í hálfleiknum, þar af tvö vítaskot.  Svenni hrökk vel í gang í seinni hálfleik og negldi hverju þrumuskotinu á fætur öðru í markið. Það er ekki spurning hvernig leikurinn hefði farið ef hann hefði sýnt álíka takta allann leikinn. Mikið var um mistök og tapaða bolta hjá Víkingum í leiknum. Fleiri myndir frá leiknum eru hér.
Þessir skoruðu mörkin:
Einar-4
Hjálmar-4
Davíð-5
Þröstur-2
Svenni-8
Gummi-2